Fréttir

Átt þú þetta læsta hjól?
Einmana hjól.
Miðvikudagur 16. apríl 2014 kl. 13:58

Átt þú þetta læsta hjól?

Lesandi hafði samband vegna þess að þetta óskila-hjól hefur staðið læst í töluverðan tíma við heimili hans í botnlanga í Reykjanesbæ. Virðist sem einhver hafi fjarlægt hjólið frá uphaflegum stað og komið því þarna fyrir. Lesandinn vildi koma þessu á framfæri því einhver hlyti að sakna hjólsins.

Sá/sú sem kannast við hjólið hafið samband í [email protected] til að fá nánari upplýsingar um staðsetningu og finnanda.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024