Föstudagur 23. desember 2005 kl. 09:19
Átök í aðdraganda jóla
Talsverð ólga var í gestum skemmtistaða í Reykjanesbæ í nótt, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Jólastressið virðist hafa farið misvel í fólk og var lögregla kölluð út vegna slagsmála og annarra illdeilna.
Þá var einn ökumaður kærður fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar í nótt.