Átök á bensínstöð
Lögregla var kölluð út vegna átaka að bensínstöð að Fitjabakka í Njarðvík í gærkvöldi. Þar hafði maður komið að bifreið sem var verið að dæla á, sparkað í hana og ráðist á farþega. Ekki urðu meiðsl en skemmdir urðu á bifreiðinni. Taldi árásarmaðurinn sig eiga eitthvað sökótt við farþegann.
Þá var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut og einn var kærður fyrir brot á stöðvunarskyldu.
Þá var einn ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut og einn var kærður fyrir brot á stöðvunarskyldu.