Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Atlantsolía vill byggja bensínstöð við Rósaselstorg
Horft til Rósaselstorgs og Flugstöð Leifs Eiríkssonar í baksýn. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 21. júní 2017 kl. 18:58

Atlantsolía vill byggja bensínstöð við Rósaselstorg

Atlantsolía bætist í hóp þeirra sem vilja byggja eldsneytisafgreiðslu við Rósaselstorg, síðasta hringtorgið áður en komið er að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
 
Bæjarstjórn Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum afgreiðslu bæjarráðs Garðs á umsókn Atlantsolíu, þar sem samþykkt var samhljóða að vísa erindinu til Skipulags-og byggingarnefndar sveitarfélagsins. 
 
Með umsókn sinni var Atlantsolía að endurnýja umsókn og vísa í fyrra erindi frá því árið 2007.
Public deli
Public deli