Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Atlantsolía sækir um lóðir á Suðurnesjum
Miðvikudagur 8. september 2004 kl. 14:33

Atlantsolía sækir um lóðir á Suðurnesjum

Atlantsolía hefur sótt um lóðir fyrir bensínstöðvar í Sandgerði og Grindavík. Bæjarráð Grindavíkur hefur lagt til að tekið verði tillit til umsóknar Atlantsolíu við gerð deiliskipulags fyrir íbúabyggð norðan Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð Sandgerðisbæjar hefur vísað erindi Atlantsolíu til fagráðs innan bæjarins þar sem tekin verður ákvörðun um staðsetningu. Atlantsolía hefur hug á að sækja um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð sem opin yrði allan sólarhringinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024