Bygg
Bygg

Fréttir

Atlantic Airways flýgur til Keflavíkur
Steinþór Jónsson með föður sínum Jóni William við flugvél ANA á Keflavíkurflugvelli.
Sunnudagur 19. janúar 2014 kl. 10:00

Atlantic Airways flýgur til Keflavíkur

Tekin var ákvöðun um að fljúga til Keflavíkurflugvallar einu sinni í viku.

„Eftir nokkur samtöl við stjórnarformann, markaðsfulltrúa og fleiri aðila hjá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways, í framhaldi af fréttaflutningi í lok desember að þeir hefðu hrökklast til Keflavíkur í febrúar n.k., get ég staðfest að flugfélagið hefur tekið ákvöðun í framhaldinu um að fljúga til Keflavíkurflugvallar einu sinni í viku nú þegar í sumar,“ segir Steinþór Jónsson, eigandi Hótels Keflavíkur, í tilkynningu á Facebook síðu sinni. 

 
Atlantic Airways mun því samkvæmt þessu áfram fljúga frá júní, þrisvar sinnum í viku, og þar af einu sinni til Keflavíkurflugvallar á miðvikudögum. Áfram verður flogið til Reykjavíkur á mánudögum og föstudögum.
 
Þjónustan á Keflavíkurflugvelli sú besta á landinu
 
Steinþór segir að forsvarsmenn flugfélagins segi Keflavíkurflugvöll greinilega mjög góðan kost enda bjóði völlurinn upp á betri þjónustu og öryggi en á nokkrum öðrum flugvelli hér á landi. Auk þess sé stutt til Reykjavíkur á tvöfaldri Reykjanesbraut fyrir þá sem þangað vilja fara og sé mismunur á akstri frá Reykjavík eða Keflavík innan við tuttugu mínutur, sé miðað við flesta áfangastaði á höfuðborgarsvæðinu. Að auki taki þeir undir að möguleikar á tengiflugi til Ameríku séu bæði betri og þægilegri en Færeyingar hafi notið hingað til, bæði með Icelandair og WOW sem hefji flug til USA í sumar. 
 
Miklir möguleikar fyrir færeyska ferðamenn
 
Steinþór segir ennfremur: „Þessari niðurstöðu ber að fagna og við bjóðum bestu erlendu vini okkar velkomna á millilandaflugvöllinn okkar hér í Keflavík. Vonandi sýnir reynslan þeim enn betur þá kosti sem þessi nýi áfangastaður hefur fyrir þá. Við hjá Hótel Keflavík ætlum t.d. að bjóða þá velkomna með því að bæta færeyska tungumálinu á heimasíðuna okkar fyrir sumarið þar sem við kynnum hótelið og alla þjónustu á okkar fallega Reykjanesi. Ég er viss um að hingað vilja Færeyingar koma enda býður Reykjanesið upp á meiri möguleika í ferðaþjónustu en nokkurt annað svæði hér á landi.“

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn