HSS
HSS

Fréttir

Átján sóttu um stöðu sviðsstjóra
Fimmtudagur 6. október 2016 kl. 06:00

Átján sóttu um stöðu sviðsstjóra

Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavíkurbæ rann út síðasta mánudag og sóttu 18 um stöðuna. Bæjarráð ræður sviðsstjóra samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar og er stefnt að því að ganga frá ráðningu sem fyrst.

Fráfarandi sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar er Þorsteinn Gunnarsson sem nýlega var ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Eftirtaldir sóttu um stöðuna og eru nöfn þeirra hér í starfrófsröð.
 
Birna Rún Arnarsdóttir - MA í haf- og strandsvæðastjórnun.


Björg Erlingsdóttir - MPA í stjórnsýslu.


Daníel Arason - Tónmenntakennari.


Eggert Sólberg Jónsson - MA í þjóðfræði.


Elín Sigríður Óladóttir - MBA í viðskiptafræði


Gunnar Kristinn Þórðarson - MPA í stjórnsýslu. 


Halldór Hlöðversson - Íþróttakennari.


Ingi Þór Ágústsson - MPA í stjórnsýslu. 


Jóhann Árni Ólafsson - BS í íþróttafræði


Jón Björn Ólafsson - BA í íslensku 


Jón Ingi Hákonarson - MS markaðsfræði og MBA stjórnun og rekstur.


Jón Rúnar Hilmarsson - M.ed. Bsc. í viðskiptafræði og B.ed. 


Ólafur Kjartansson - Bsc. International Marketing Management


Ragna Gestsdóttir - Lögfræðingur


Sigurður Hilmar Guðjónsson - MS alþjóðaviðskipti og markaðsfræði. 


Vala Gestsdóttir - MA í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi.


Þórður Ingi Bjarnason - BA ferðamálafræði.


Þórunn Erlingsdóttir - BS í íþróttafræði.