Athyglisverður árangur stúlkna í íþróttum
Stúlkur úr Reykjanesbæ lönduðu átta titlum, af níu, í Bikar- og Íslandsmeistaramótunum í körfuknattleik á undangengnu leiktímabili.Þessi árangur er athyglisverður þegar horft er til brottfalls stúlkna úr íþróttum almennt, sem hefur verið áhyggjuefni. Skúli Þ. Skúlason, oddviti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, fjallaði um málið á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.