Athvarf fyrir geðfatlaða opnar í dag
Athvarf fyrir geðfatlaða verður opnað í Sjálfsbjargarhúsinu í dag, föstudaginn 5. febrúar kl. 15:00
Að athvarfinu standa Reykjanesbær, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurnesjum og Sjálfsbjörg á Suðurnesjum. Auk þeirra koma fjölmargir aðrir að rekstri athvarfsins með ómetanlegum stuðningi.
Tilgangur athvarfsins er að skapa vettvang fyrir þá einstaklinga sem búa við geðfötlun eða geðröskun, eru utan stofnunar, óvinnufærir og félagslega einangraðir. Athvarfinu er ætlað að gera geðfötluðum kleift að koma reglu á líf sitt og fá þjálfun í athöfnum daglegs lífs.
Meginmarkmið starfsemi athvarfsins verður að efla sjálfstæði fólks með geðræn vandamál og að leita leiða til að auka samfélagsþátttöku þeirra sem athvarfið sækja. Verður það gert með félagslegri samveru, fræðslu, þjálfun, tómstundum og persónulegum stuðningi.
Undirbúningur að opnun athvarfsins hefur staðið yfir í 18 mánuði. Mikil vinna hefur verið lögði í verkefnið sem mun nýtast áfram við uppbyggingu á geðheilbrigðisþjónustu í Reykjavesbæ.
Að sögn Hjördísar Árnadóttur glíma fjölmargir viðskiptavinir Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar við geðsjúkdóma eða geðraskanir sem hamla þeim frá samfélagslegri virkni. „Félagsþjónustan vildi leita leiða til að bæta þjónustu við þessa einstaklinga með það að markmiði að hjálpa þeim til sjálfshjálpar. Við áttum í viðræðum við Sjálfsbjörgu á Suðurnesjum um samstarf við uppbyggingu á þjónustu við geðfatlaða, þegar framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra ljáði máls á samstarfi um rekstur athvarfs fyrir geðfatlaða í Reykjanesbæ. Til varð samstarfshópur þessara aðila um uppbyggingu á þjónustu við geðfatlaða“.
Í athvarfinu geta þeir sem glíma við geðræn vandamál komið saman og deilt sinni lífsreynslu. Í slíkum hóp skapast oft sérstakt andrúmsloft samkenndar og skilnings. „Það að deila reynslu og vonum gerir fólki kleift að sýna gagnkvæman stuðning og gefa góðar ráðleggingar. Hver meðlimur hópsins ber ábyrgð á því að halda hópnum gangandi og að spjara sig sjálfur. Í sjálfshjálparhóp eru allir jafnir - allir meðlimir hópsins búa yfir þekkingu sem nýtist við að taka á sameiginlegum vandamálum. Í hópnum fær fólk tilfinningalegan stuðning, upplýsingar, ráðgjöf og vináttu. Þar hittist fólk á jafningjagrunni og allar upplýsingar sem koma fram innan hópsins eru trúnaðarmál.“
Af vef Reykjanesbæjar