Átaki til að draga úr atvinnuleysi hleypt af stokkunum á Suðurnesjum
Í dag var sett formlega af stað sérstakt átak sem Félagsmálaráðherra og Vinnumálastofnunu standa að varðandi langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi ungs fólks. Með verkefninu verður leitast við að greina orsakir atvinnuleysis þessara hópa á einstökum svæðum og setja af stað staðbundin verkefni sem eiga að treysta stöðu viðkomandi hópa á vinnumarkaði, meðal annars með námsframboði við hæfi. Verkefninu var hleypt af stokkunum í húsakynnum Kaffitárs í Reykjanesbæ að viðstöddum Árna Magnússyni félagsmálaráðherra, Hjálmari Árnasyni alþingismanni og Gissuri Péturssyni forstjóra Vinnumálastofnunar.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði ástæðu þess að verkefninu væri hleypt af stokkunum á Suðurnesjum væri sú að atvinnuleysi meðal ungs fólks væri mest hér. „Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum af landinu öllu og það hafa verið blikur á lofti í atvinnumálum Suðurnesjamanna um nokkurt skeið. En sem betur fer eru ekki bara slæmar fréttir sem koma af svæðinu og vil ég þar helst nefna fréttir af stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.“
Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar kynnti tölur um atvinnuleysi á landinu og kom fram í máli hans að atvinnuleysi væri mest hér á Suðurnesjum og þá sérstaklega í aldurshópnum 16 til 25 ára. Að sögn Gissurs lítur hann á Suðurnesin sem spennandi tilraunasvæði. „Á svæðinu er boðið upp á öflug menntunarúrræði og svæðið sem slíkt er spennandi menntunartengt vinnumarkaðssvæði.“
Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokksins var skipaður formaður verkefnisstjórnar, en fyrsti fundur verkefnisstjórnarinnar var haldinn í dag. Hjálmar sagði mikilvægasta verkefni átaksins væri að skapa störf og glíma við vandann á vinnumarkaðnum. „Við þurfum að finna leiðir til að búa fólk undir það að takast á við atvinnuleysið. Með átakinu verður lögð áhersla á leiðir til að bjóða upp á aukið starfsnám í skólum landsins og að koma ungu fólki sem verið hefur atvinnulaust lengi inn á vinnumarkaðinn á nýjan leik. Það er mér mikið fagnaðarefni að átakið skuli hefjast hér á Suðurnesjum, en tek það skýrt fram að átakið verður unnið á landsvísu,“ sagði Hjálmar og lagði áherslu á að átakið yrði unnið í samvinnu við skóla, verkalýðsfélög, sveitarfélög og fyrirtæki.
Á fimmtudag hefur verkefnisstjórn átaksins boðað fulltrúa þessara aðila til fundar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem rætt verður um fyrirhugað átak.
VF-ljósmynd/JKK: Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar ásamt Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og Hjálmari Árnasyni á fundinum í dag.