RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt
RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt

Fréttir

Átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi
Miðvikudagur 27. september 2017 kl. 15:18

Átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi

Átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi stendur nú yfir í umdæmum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Lögreglunnar á Suðurnesjum. Markmið átaksins er að ganga úr skugga um hvort einhverjir atvinnurekendur séu með fólk í vinnu án tilskilinna leyfa. Jafnframt er lagt mat á lögmæti dvalar útlendings, svo og athugað hvort lögbundnar skatt- og gjaldgreiðslur séu til staðar.

Að verkefninu koma Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á Suðurnesjum, Ríkisskattstjóri, Útlendingastofnun og  Vinnumálastofnun.

Atvinnurekendur geta því gert ráð fyrir að fyrirtæki þeirra verði sótt heim af fulltrúum ofangreindra stofnana  án fyrirvara.
 

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025