Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Átak gegn hraðakstri
Fimmtudagur 24. mars 2005 kl. 12:29

Átak gegn hraðakstri

Lögregluembættin á suð-vesturhorninu standa nú fyrir átaki þar sem spjótunum er beint að hraðakstri. Þannig stöðvaði lögreglan átta ökumenn fyrir hraðakstur í gærkvöld og nótt.
Fjórir þeirra voru teknir á Reykjanesbraut, tveir á Garðvegi, einn á Njarðarbraut í Njarðvík og einn á Víkurbraut í Grindavík.

Þessa dagana stendur lögreglan á suðvesturhorninu fyrir umferðarátaki þar sem spjótunum er beint að hraðakstri.  Á kvöldvaktinni voru sjö ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.   Fjórir á Reykjanesbraut, tveir á Garðvegi og einn á Víkurbraut í Grindavík.

Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir í nótt vegna gruns um ölvun við akstur og einn gisti fangageymslur vegna heimilisófriðar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024