Át upplýsingablað fyrir handtekna
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina vegna fíkniefnaaksturs gaf í þegar lögreglumenn gáfu honum merki um að stöðva bifreiðina. Ökuferðinni lauk snögglega með því að ökumaðurinn ók á grindverk og síðan á hús.
Þrír farþegar voru í bifreiðinni og voru þeir allir handteknir, auk ökumanns, þar sem þeir voru í afar annarlegu ástandi.
Á lögreglustöð át einn þeirra upplýsingablað handa handteknum. Fólkið, sem hafði komið frá Reykjavík til að sækja skemmtistað í Reykjanesbæ, var allt vistað í fangaklefa þar til það náði áttum.
Bifreiðina varð að fjarlægja af vettvangi með dráttarbifreið og talsverðar skemmdir urðu á grindverkinu og húsinu.