Ástandið á Haiti tekur á sál og líkama
Félagarnir Haraldur Haraldsson og Halldór Halldórsson úr Björgunarsveitinni Suðurnes voru meðal þeirra sem fóru til borgarinnar Léogane á Haiti í gær til að leita í rústum borgarinnar. Haraldur hefur lýst því að ástandið á Haiti taki bæði á sál og líkama. Gærdagurinn hafi verið erfiður, enda verið að fara á svæði þar sem engin hjálp hafi borist.
Horfið var frá áformum um að sveitin gisti á svæðinu og fór hún því til búða í gærkvöldi. Ástandi í Léogane er afar slæmt og leitaði sveitin í rústum en enginn fannst þar á lífi. Mikið var af slösuðu fólki í borginni og sinnti sveitin sjúkrahjálp. Einnig kallaði hún eftir alþjóðlegu sjúkraliði á staðinn og mun hópur fara á staðinn í dag.
Verkefni sveitarinnar í dag er að leita í rústum í miðborg Port au Prince ásamt bandarískri sveit sem hún hefur unnið með áður.
Ástand meðlima sveitarinnar er eftir atvikum gott, segir í frétt frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Þegar rústabjörgunarhópurinn kemur til búða er búið að hreinsa vatn svo þeir geti farið í sturtu, gætt er að því að allir fái nóg að borða og að þeir séu að drekka nægt vatn.
Slysavarnafélagið Landsbjörg og utanríkisráðuneytið vinna nú að því að undirbúa flutning sveitarinnar til Íslands. Ekki er þó vitað hvenær sveitin lýkur störfum á Haiti en þumalfingursreglan er sú að rústabjörgunarsveitir hætta störfum eftir að 48 klst eru liðnar frá síðasta fundi á lifandi manneskju á skaðasvæðinu.