Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ásmundur ætlar sér 1.-2. sæti í Suðurkjördæmi
Miðvikudagur 3. ágúst 2016 kl. 15:13

Ásmundur ætlar sér 1.-2. sæti í Suðurkjördæmi

Treystir kjósendum fyrir uppstillingu listans

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokks hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-2. sæti í Suðurkjördæmi á lista Sjálfstæðisflokks í komandi prófkjöri flokksins.. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Ásmundur sendi frá sér í dag. Tilkynninguna má sjá hér að neðan:

„Í samráði við fjölskyldu mína og stuðningsmenn allstaðar í kjördæminu hef ég ákveðið að bjóða mig fram í 1 – 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi 10. september nk.
Þegar líður að kosningum og raðað verður að nýju á lista flokksins er mikilvægt að kjósendur hafi frjálsar hendur um uppstillingu á listann en Sjálfstæðisflokkurinn hefur treyst kjósendum flokksins fyrir því vali. Ég hef haft mikla ánægju af því að vinna fyrir alla íbúa í kjördæminu frá síðustu kosningum, deila með þeim gleði og sorg og taka undir vagninn með fólki þegar aðstoðar hefur verið þörf.

Ég lýsi því yfir að ég er tilbúinn til að taka að mér forystuhlutverk á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningarnar í haust ef ég fæ til þess stuðning, en af hógværð sækist ég eftir 1 – 2. sæti. Ég hef sýnt það að ég læt verkin tala og stend með sannfæringu minni eins og fram hefur komið í mörgum málum. Ég mun halda áfram á þeirri braut sem ég hef markað mér og vinna með fólkinu og atvinnulífinu í Suðurkjördæmi fái ég til þess stuðning í prófkjörinu 10. september.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ásmundur Friðriksson alþingismaður