Bygg
Bygg

Fréttir

Áskorun um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja
Mánudagur 31. janúar 2011 kl. 10:51

Áskorun um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja


Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra hefur verið send áskorun til ríkisstjórnar Íslands um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar. Það eru þingmenn Suðurkjördæmis sem standa að áskoruninni.


Áskorunin hljóðar svo: „Við undirrituð, allir tíu þingmenn Suðurkjördæmis og allir oddvitar meirihluta og minnihluta í sveitarstjórnum á Suðurnesjum, skorum á ríkisstjórn Íslands að taka ákvörðun um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Lokið verði hið fyrsta við skoðun á kostum þess að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja og þær væntingar sem Suðurnesjayfirlýsing ríkisstjórnarinnar vakti um flutninginn nái fram að ganga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Umræða um flutning stofnunarinnar í hentugt og rúmgott húsnæði í Ásbrú á Vallarheiðinni hefur staðið yfir um nokkurra missera skeið. Fjölmargir kostir fylgja að okkar mati því að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Slæmt atvinnuástand á svæðinu þrýstir á að öllum ákvörðunum sem tengjast starfsemi á því sé hraðað sem kostur er. Miklu skiptir að fyrir liggi ákvörðun og óvissu um framgang málsins eytt.


Á Reykjanesi er húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægir þörfum Landhelgisgæslunnar að öllu leyti. Stórt og fullkomið flugskýli er á Ásbrú en árið 2000 var það endurnýjað. Njarðvíkurhöfn getur strax tekið við skipaflota Landhelgisgæslunnar. Frá Reykjanesbæ er stutt á aðalstarfssvæði Landhelgisgæslunnar, hafsvæðið í kringum Ísland. Þá má ætla að aukin starfsemi Landhelgisgæslunnar í kjölfar breytinga á starfsemi Varnarmálastofnunar, kalli á stærra húsnæði og nálægð við þau tæki og tól sem heyra undir hana.


Með flutningi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja myndi ríkisvaldið sýni í verki stuðning sinn við eflingu atvinnulífs á Suðurnesjum auk þess að gera Landhelgisgæsluna að enn öflugri stofnun til hagsbóta fyrir landsmenn alla.


Samstaða alþingismanna og sveitarstjórnarmanna þvert á stjórnmálaflokka um flutning Landhelgisgæslunnar gefur væntingar um að ákvörðun um flutning stofnunarinnar til Suðurnesja gangi eftir hið fyrsta“.


Undir áskorunina skrifa Björgvin G. Sigurðsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Atli Gíslason, Oddný G. Harðardóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Eygló Harðardóttir, Róbert Marshall, Árni Johnsen og Margrét Tryggvadóttir.

Nöfn sveitarstjórnarmannanna sem skrifuðu undir Áskorun til ríkisstjórnar Íslands um flutning Landhelgisgæslunnar í Reykjanesbæ eru:

Páll Valur Björnsson S lista Grindavík, Bryndís Gunnlaugsdóttir B lista Grindavík, Guðmundur Pálsson D lista Grindavík, Inga Sigrún Atladóttir H lista Vogum, Hörður Harðarson E lista Vogum, Kristinn Björgvinsson L lista Vogum, Ólafur Þór Ólafsson S lista Sandgerði, Guðmundur Skúlason B lista Sandgerði, Hólmfríður Skarphéðinsdóttir D lista Sandgerði, Magnús S. Magnússon H lista Sandgerði, Jónína Hólm N lista Garði, Davíð Ásgeirsson L lista Garði, Einar Jón Pálsson D lista Garði, Friðjón Einarsson S lista Reykjanesbæ, Árni Sigfússon D lista Reykjanesbæ og Kristinn Þór Jakobsson B lista Reykjanesbæ.