Áskorun til ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur
– Ákall um auknar framkvæmdir
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir yfir áhyggjum sínum yfir dökkri stöðu atvinnumála á Suðurnesjum og kallar eftir nauðsynlegum aðgerðum og samráði við ríkisstjórn Íslands án tafar. Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var á fundi bæjarráðs Voga fyrir síðustu helgi.
„Suðurnesin hafa orðið fyrir tvöföldu áfalli á skömmum tíma, fyrst með falli WOW Air, með tilheyrandi 30% samdrætti í flugsamgöngum, og nú því reiðarslagi sem heimsfaraldrinum fylgir. Ljóst er að áhrifin munu valda sögulegu atvinnuleysi sem nú nálgast á þriðja tug prósenta á svæðinu. Höggið kallar á fumlausar aðgerðir, samstöðu og lausnir sem leiða til öflugrar viðspyrnu.
Bæjarráð hvetur því ríkisstjórnina til þess að beita sér strax fyrir leiðréttingu ríkisframlaga til stofnana á Suðurnesjum og flýtingu framkvæmda eins og kostur er. Horft verði til þeirra verkefna sem þegar hafa verið kynnt fyrir ríkisvaldinu auk verkefna á sviði öryggismála, menntamála, samgangna og heilbrigðismála sem ráðast má í með skömmum fyrirvara.
Bæjarráð fagnar þeim almennu aðgerðum sem nú þegar hefur verið ráðist í en krefst þess að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra svæða á Íslandi sem verst verða úti.
Bæjarráð mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að standa vörð um velferð íbúa í gegnum þá erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag. Saman munum við vinna sigur á þeirri heilbrigðisvá sem að steðjar og endurreisa hér blómlega byggð þar sem framsækni, virðing og eldmóður tryggir heilsu og lífsgæði okkar allra,“ segir í áskoruninni.