Miðvikudagur 14. júlí 2004 kl. 15:38
Ásgerður ráðin aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla

Ásgerður Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri Njarðíkurskóla. Ásgerður hefur starfað sem kennari og deildarstjóri við Njarðvíkurskóla í 20 ár og tekur við starfi Guðmundu Láru Guðmundsdóttur þann 1. ágúst næstkomandi sem hefur verið ráðin skólastjóri í stað Gylfa Guðmundssonar sem lét af störfum sl. vor sökum aldurs.