Ásgeir Davíðsson kaupir Festi - Boðið upp á listdanssýningu í dag
Samningar hafa náðst við Ásgeir Davíðsson athafnamann um að hann kaupi félagsheimilið Festi og verður þar rekinn skemmtistaður og hótel. Ásgeir segist ætla að rífa upp gömlu og góðu Festisstemmninguna og ætlar m.a. að bjóða upp á listviðburði á heimsmælikvarða.
Í tilefni dagsins ætlar Ásgeir að bjóða Grindvíkingum á listdanssýningu í Festi kl. 17:00 í dag í gamla samkomusalnum sem verður upphitun fyrir kútmagakvöld Lions í kvöld. Munu félagar í Lions standa heiðursvörð á sýningunni. Allir bæjarbúar eldri en 18 ára eru velkomnir.