Ásdís verður sýslumaður á Suðurnesjum
Þórólfur verður sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu
Ásdís Ármannsdóttir verður sýslumaður á Suðurnesjum en Þórólfur Halldórsson sem verið hefur sýslumaður í Keflavík, heldur á höfurborgarsvæðið. Ný lög um umdæmaskipan sýslumanna taka gildi um næstu áramót. Embættin verða 9 í stað 24 áður, sem tryggir öflugri og stærri embætti og skapar ný tækifæri fyrir þessa mikilvægu þjónustu í öllum landshlutum. Ásdís var áður sýslumaður á Akureyri og Siglufirði.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti sýslumanna í nýjum umdæmum. Ný embætti sýslumanna munu taka til starfa um næstu áramót í samræmi við ný lög sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglustjóra og aðskilnað embættanna.
Samkvæmt hinum nýju lögum verður sýslumannsembættum fækkað úr 24 í níu. Lokið verður skipan í embætti í nýjum umdæmum lögreglustjóra á næstu dögum.
Skipan í embætti sýslumanna verður sem hér segir:
• Sýslumaður á Suðurlandi: Anna Birna Þráinsdóttir.
• Sýslumaður í Vestmannaeyjum: Lára Huld Guðjónsdóttir.
• Sýslumaður á Austurlandi: Lárus Bjarnason.
• Sýslumaður á Norðurlandi eystra: Svavar Pálsson.
• Sýslumaður á Norðurlandi vestra: Bjarni G. Stefánsson.
• Sýslumaður á Vestfjörðum: Jónas Guðmundsson.
• Sýslumaður á Vesturlandi: Ólafur K. Ólafsson.
• Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu: Þórólfur Halldórsson.
• Sýslumaður á Suðurnesjum: Ásdís Ármannsdóttir.
„Það er afar ánægjulegt að svo öflugur hópur einstaklinga taki að sér þessi mikilvægu embætti sýslumanna í landinu. Sýslumannsembættin eru gamalgrónar og traustar stjórnsýslu- og þjónustustofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki. Með sameiningu og fækkun embætta verða til stærri, öflugri og hagkvæmari rekstrareiningar sem eru betur í stakk búnar til að takast á við ný verkefni og efla þjónustu við almenning í landinu,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra í frétt á vef innanríkisráðuneytisins.