Ása Óla opnar sýningu í Salfisksetrinu
Ása Óla opnar málverkasýningu í Listasal Saltfisksetursins laugardaginn 21. júní kl. 14:00 sýninguna kallar hún Geisha ofl.
Ása Óla er fædd á Húsavík 1983 og er uppalin á Hveravöllum í Reykjahverfi. Foreldrar hennar eru Ólafur Atlason og Alda Pálsdóttir. Hún útskrifaðist úr Myndlistaskóla Akureyrar vorið 2007 af fagurlistabraut. Einnig hefur hún farið á ýmis námskeið s.s í keramiki, módelteiknun og ljósmyndun. Ása Óla er virkur meðlimur í samsýningahópnum Grálist.
Geisha ofl. er önnur einkasýning Ásu eftir nám. Sýningin stendur til 7. júlí.
Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11-18.
Af: www.grindavik.is