Ársreikningur Voga: 42 milljón króna afgangur

Rekstrartekjur samstæðunnar þ.e. sveitarsjóðs og veitustofnana voru tæpar 400 milljónir og rekstrargjöld 385 milljónir, þar af launakostnaður 240 milljónir. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld var 84,2 milljónir og rekstrarniðurstaða 42,1 milljón.
Eignir samstæðunar eru samtals 865 milljónir og eigið fé 357,7 milljónir. Skuldir og skuldbindingar lækka milli ára um 70,1 milljón og voru í árslok 514,3 milljónir. Skuldir á íbúa hafa því lækkað úr 624 þúsundum árið 2004 í 505 þúsund á íbúa í árslok 2005.