Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Fréttir

Ársreikningar Reykjanesbæjar fundnir
Fimmtudagur 25. febrúar 2016 kl. 15:16

Ársreikningar Reykjanesbæjar fundnir

Greint var frá því á vef Viðskiptablaðsins í gær að það hefði óskað eftir ársreikningum Reykjanesbæjar tímabilið 1994 til 2002 vegna skrifa á úttekt um fjármál sveitarfélagsins sem birtast átti í dag, fimmtudag. Í fréttinni kom fram að ekki hafi verið unnt að fá reikningana afhenta hjá bæjarfélaginu vegna þess að þeir fundust ekki í skjalasafni. Í pistli Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, á vef bæjarfélagsins, kemur fram að reikningarnir séu fundnir. Hjá endurskoðendum bæjarfélagsins eru til eintök af ársreikningum þessa tímabils. Ástæða þess að reikningarnir fundust ekki í skjalakerfi bæjarins er sú þeir voru ekki geymdir á rafrænu formi, heldur pappírsformi. Skráning og utanumhald var í tölvukerfi sem síðan hefur verið endurnýjað og aflagt.

 
Hér má lesa pistil bæjarstjórans í heild sinni:
 

Á vefsíðu Viðskiptablaðsins www.vb.is var greint frá því í gær, miðvikudaginn 25. febrúnar 2016, að unnið væri að úttekt á fjármálum Reykjanesbæjar sem birtast átti í dag, fimmtudaginn 26. febrúar. Jafnframt var þess getið að Reykjanesbær hefði ekki getað afhent gamla ársreikninga frá 1994-2002 þar sem þeir fyndust ekki í skjalasafninu. Um þetta hafa svo spunnist umræður á samfélagsmiðlum. Þess vegna tel ég rétt að upplýsa hvernig málið er vaxið frá sjónarhóli Reykjanesbæjar.

 
Ársreikningar á umræddu tímabili voru ekki geymdir á rafrænu formi, eins og gert er í dag, heldur í pappírsformi. Skjalaskráning og utanumhald á þessum tíma var í ákveðnu tölvukerfi sem síðan hefur verið endurnýjað og fyrra kerfi aflagt. Fyrir nokkrum árum var gerð leit að umræddum ársreikningum í skjalasafni Reykjanesbæjar en fundust ekki. Það voru svörin sem Viðskiptablaðið fékk frá fjármálasviðinu. Þessi samskipti Viðskiptablaðsins við starfsmenn sveitarfélagsins voru mér ekki kunn fyrr en ég las frétt Viðskiptablaðsins í gærkvöldi og sendi undirritaður þá svohljóðandi afsökunarbeiðni til blaðsins, sem reyndar hvorki hefur verið móttekin né svarað:
 
„Til ritstjórnar Viðskiptablaðsins
 
Undirrituðum var ekki kunnugt um þá ósk Viðskiptablaðsins að fá afrit af 15-20 ára gömlum ársreikningum Reykjanesbæjar. Þó reikningarnir hafi ekki fundist í núverandi skjalakerfi sveitarfélagsins hefði mátt ætla að endurskoðunarfyrirtæki sveitarfélagsins ætti afrit í sínum fórum. Það hefði amk. verið rökrétt að kanna það. Það var ekki gert og biðst ég afsökunar á því.
 
Í kjölfar fréttarinnar í dag var send inn fyrirspurn til endurskoðenda og hafa þeir staðfest að eiga eintök af eldri reikningum en því miður ekki á rafrænum formi. Því þarf að fjölfalda ársreikningana og þegar því er lokið munum við senda ykkur eintök.“
 
Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar
 
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100