Árni Sigfússon, bæjarstjóri: Kaldhæðinn húmor
Í 24 stundum í morgun er greinastubbur eftir Árna Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, þar gerir hann kaldhæðnislegt grín að Iceland Express.
Árni snýr texta úr blaði flugfélagsins, sem fjallaði um Reykjanesbæ, yfir á flugfélagið sjálft. Tilgangurinn hjá Árna er eflaust að sýna fram á hversu kaldhæðinn húmorinn er og geti verið skaðlegur hvort heldur fyrir bæjarfélagið okkar eða flugfélagið, Iceland Express.
Fyrirsögn greinarinnar er Flugfélag Óttans?