Árni Mathiesen fer ekki fram
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og leiðtogi Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ætlar ekki að gefa kost á sér í komandi prófkjöri og kosningum. Hann var rétt í þessu að senda út frétt þessa efni.
Þar stendur m.a.:
Á ferðum mínum um kjördæmið að undanförnu hefur berlega komið í ljós að mikill vilji er til breytinga innan Sjálfstæðisflokksins. Þessi afstaða er vel skiljanleg í ljósi þeirra erfiðleika sem þjóðin hefur gengið í gegnum á síðustu mánuðum og misserum. Þó ég sé allur af vilja gerður til þess að bregðast við þessu kalli um breytingar má ljóst vera að því eru takmörk sett hvað ég get gert í þeim efnum af augljósum ástæðum. Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í prófkjöri flokksins þann 14. mars næstkomandi vegna kosninganna 25. apríl í vor. Það er hlutverk leiðtoga að leiða en það er líka nauðsynlegt fyrir leiðtoga að vita hvenær á að víkja.
Ég vil þakka öllum sem með mér hafa starfað í Suðurkjördæmi á undanförnum árum og mun eiga góðar minningar um samstarfið og þann góða árangur sem við náðum í síðustu kosningum. Á átján ára þingferli hef ég verið 1. þingmaður í þremur kjördæmum og ráðherra í tæp tíu ár í í ráðuneytum sjávarútvegs og fjármála. Öllum þeim sem með mér hafa starfað færi ég þakkir fyrir samstarfið. Sérstaklega vil ég þó þakka þeim sem hefðu viljað styðja mig í prófkjörinu í næsta mánuði og vona að ég valdi þeim ekki of miklum vonbrigðum með ákvörðun minni.
Með von um gott gengi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og á landinu öllu í næstu kosningum,
Virðingarfyllst ,
Árni M. Mathiesen