Árleg úthlutun úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar
Árleg úthlutun styrkja úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar fór fram í Stapa í gær, 25.maí, en þar voru afhentir styrkir og gengið frá samningum fyrir samtals 30 milljónir króna.
Hlutverk Manngildissjóðs er að veita fjárhagslegan stuðning, styrki og viðurkenningar til verkefna á sviði fræðslu, fjölskyldu- og forvarnarmála, menningar- og listamála, umhverfismála, tómstunda- og íþróttamála og til stuðnings verkefna í þágu mannræktar og aukins manngildis í Reykjanesbæ. Við athöfnina var jafnframt skrifað undir samninga við menningar-, íþrótta- og tómstundafélög í bæjarfélaginu.
Manngildissjóður var stofnaður árið 2003 og hefur síðan þá verið stærsti einstaki styrktaraðili manngildisverkefna í Reykjanesbæ og þó víðar væri leitað. Yfirstjórn sjóðsins er í höndum Bæjarráðs Reykjanesbæjar en úthlutun fjármagns til einstakra verkefna er í höndum viðkomandi fagráða og nefnda á vegum bæjarfélagsins.
Alls fengu 76 verkefni úthlutun úr sjóðnum að þessu sinni en stjórn sjóðsins mun ákveða frekari úthlutun úr sjóðnum í tengslum við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010.