Bygg
Bygg

Fréttir

Árleg Skötumessa í Gerðaskóla
Skötumessan er árviss viðburður í Suðurnesjabæ. Mynd úr safni Víkurfrétta
Fimmtudagur 7. júlí 2022 kl. 09:14

Árleg Skötumessa í Gerðaskóla

Árleg Skötumessa verður haldin miðvikudaginn 20. júlí kl. 19:00 í Gerðaskóla. Að venju verður boðið upp á skötu, saltfisk, plokkfisk og tilheyrandi meðlæti. Þá verður einnig skemmtidagskrá fyrir viðstadda. Markmið Skötumessunnar er að senda út stuðning til samfélags þeirra sem lifa við heilsubresti eða fötlun.

Fram koma Dói og Baldur með harmonikkutónlist, Páll Rúnar Pálsson mun syngja ættjarðarlög og Óskar Ívarsson og Davíð Guðmundsson setja alla í gírinn með Jarli Sigurgeirssyni sem síðar stjórnar Brekkusöng á Skötumessu. Auk þess munu ungt tónlistarfólk koma fram, þar á meðal Jón Arnór og Baldur, Sísí og Kristján. Ræðumaður kvöldsins mun svo bætast við í hópinn á næstu dögum. 

Verð á viðburðinn er 5.000 krónur og hvetja skipuleggjendur alla þá sem sjá sér fært að mæta að leggja inn á reikning Skötumessunnar: rn. 0142-05-70506, kt. 580711-0650.

Bílakjarninn
Bílakjarninn