Fréttir

Áríðandi skilaboð til íbúa á Suðurnesjum vegna eldgoss
Yfirlitsmynd af Svartsengi og Grindavík sést í fjarska.
Fimmtudagur 8. febrúar 2024 kl. 11:00

Áríðandi skilaboð til íbúa á Suðurnesjum vegna eldgoss

Tilkynning frá HS Veitum í tengslum við eldgos á Reykjanesi

Eldgos hófst í morgun á Reykjanesi. Hraunflæðið rennur nú í átt að stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ. Fari hraunflæði yfir lögnina er útlit fyrir að sú sviðsmynd raungerist að ekkert heitt vatn frá Svartsengi með þeim afleiðingum að heitavatnslaust verður í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Eins og hraðinn er á hraunflæðinu núna gæti það gerst á næstu klukkustundum.

Til að bregðast við slíkum atburði hefur verið unnið að lagningu nýrrar heitavatnslagnar í jörðu á þessu svæði. Búið er að leggja um 500 metra langan kafla þar sem ætlunin er að tengja ef gamla lögnin eyðileggst en það getur hinsvegar tekið einhverja daga að koma nýju lögninni í gagnið.     

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Búið að fylla á heitavatnstankana á Fitjum en til þess að heitavatnsbirgðirnar endist sem lengst til að halda hita á húsunum á þessu svæði biðjum við íbúa og atvinnulíf að lækka í hitakerfum í húsum og vera ekki að nota heitt vatn til baða í sturtu, baðkörum eða heitum pottum. Nú þegar er búið að skerða afhendingu á heitu vatni til stórnotenda. 

Einnig er nú viðbúið að gripið verði til rafkyndingar sem rafdreifikerfi okkar er ekki hannað fyrir. Er biðlað til húseigenda að bíða með að hefja rafkyndingu í lengstu lög. Reynir svo á samtakamátt íbúa, ef til þess kemur, að hámarka rafkyndingu við 2,5 kW á hverja íbúð og fara á sama tíma í raforkusparandi aðgerðirsjá ábendingar hér.

Hættan af of miklu álagi á rafdreifikerfið, jafnvel frá einni íbúð, er sú að öll gatan eða jafnvel allt kerfið slái út með tilheyrandi hættu á bilunum í jarðstrengjum eða dreifistöðvum, sem þá gæti tekið langan tíma að laga.