Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ari Trausti leiðir lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi
Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður og jarðfræðingur.
Mánudagur 2. október 2017 kl. 11:53

Ari Trausti leiðir lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

Fyrsti framboðslisti Vinstri grænna fyrir komandi Alþingiskosningar var samþykktur nú um helgina. Listinn í Suðurkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðs á Selfossi, en stillt var upp á listann.

Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður,  leiðir listann eins og í kosningunum í fyrra.  Efstu sætin eru óbreytt og er Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi í öðru sæti,  Daníel E. Arnarson, framkvæmdastjóri í þriðja sæti og Dagný Alda Steinsdóttir, innanhússarkitekt í fjórða sæti listans.

Listi Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi er eftirfarandi:
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi
Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri
Dagný Alda Steinsdóttir, innanhúsarkitekt
Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi
Gunnar Marel Eggertsson, skipasmíðameistari
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, nemi
Gunnar Þórðarson, tónskáld
Hildur Ágústsdóttir, kennari
Gunnhildur Þórðardóttir, myndlistarmaður
Einar Sindri Ólafsson, háskólanemi
Ida Løn, framhaldsskólakennari
Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, þróunarstjóri
Anna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Jónas Höskuldsson, öryggisvörður
Steinarr Guðmundsson, verkamaður
Svanborg Jónsdóttir, dósent
Ragnar Óskarsson, eftirlaunamaður
Guðfinnur Jakobsson, bóndi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024