Laugardagur 19. maí 2007 kl. 12:14
				  
				Árekstur við Samkaup Strax í Keflavík
				
				
				

Umferðaróhapp varð við verslunina Samkaup Strax í Keflavík í gærkvöldi. Þar hafði bifreið verið ekið frá versluninni og í veg fyrir bifreið, sem ekið var eftir Hringbraut.  Engin slys á fólki en fjarlægja varð aðra bifreiðina af vettvangi með dráttarbifreið.