Árekstur á Heiðarbraut
Harður árekstur var á Heiðarbraut í Reykjanesbæ í morgun beint utan við leikskólann Heiðarsel þegar tvær bifreiðar skullu saman. Flytja þurfti farþega í annarri bifreiðinni á brott með sjúkrabifreið en í hinni bifreiðinni voru ökumaður og farþegi sem sluppu án meiðsla en voru töluvert skelkaðir eftir áreksturinn.
VF-mynd/ [email protected]