Árekstur á Grindavíkurvegi
Loka þurfti Grindavíkurvegi um tíma nú á þriðja tímanum vegna umferðarslyss er tveir bílar skullu saman. Vegurinn hefur verið opnaður aftur en lögregla vinnur að vettvangsrannsókn. Um framúrakstur mun hafa verið að ræða samkvæmt frétt á visi.is. Þrír voru fluttir á slysadeild en eru ekki alvarlega slasaðir.
Mynd/elg: Frá vettvangi slyssins.