HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

Áreittu börn í strætó og gerðu aðsúg að lögreglu
Fimmtudagur 12. janúar 2017 kl. 22:33

Áreittu börn í strætó og gerðu aðsúg að lögreglu

– samfélagsmiðlar í Reykjanesbæ loga í kvöld

Samfélagsmiðlar í Reykjanesbæ hafa logað nú í kvöld vegna karlmanna sem voru að áreita börn í strætisvagni í Reykjanesbæ. 
 
Samkvæmt þeim upplýsingum sem koma fram í a.m.k. tveimur lokuðum hópum hjá íbúum Reykjanesbæjar hringdu börn úr strætisvagninum í Neyðarlínuna og óskuðu aðstoðar lögreglu eftir að erlendir karlmenn voru að áreita börnin. Eru þeir sagðir hafa bæði kysst og þuklað á börnum í strætisvagninum.
 
Í innleggi á samfélagssíður íbúa í Innri Njarðvík og betri Reykjanesbæjar eru foreldrar sem eiga börn sem tóku strætó eftir kl. 15 í dag hvattir til að ræða við börn sín um það sem þau sáu eða upplifðu.
 
Er í póstinum talað um ósæmilega eða kynferðislega hegðun nokkurra manna. Haft er eftir bílstjóra strætisvagnsins að mennirnir séu frá Albaníu og séu hælisleitendur sem búi í Reykjanesbæ. Í athugasemd við fésbókarfærsluna í öðrum lokaða hópnum kemur fram að umræddum mönnum hafi verið vísað úr landi og þeir eigi að yfirgefa landið á morgun.
 
Lögreglan á Suðurnesjum mun hafa haft afskipti af mönnunum um kl. 16 í dag þegar strætisvagninn kom að skiptistöð við Nettó í Njarðvík. Klukkustund síðar munu mennirnir hafa verið komnir aftur í strætisvagn í Reykjanesbæ og byrjaðir að áreita börn að nýju.
 
Af lestri athugasemda við færsluna á fésbókarsíðu betri Reykjanesbæjar kemur fram að þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem erlendir karlmenn áreita börn í strætisvögnum í Reykjanesbæ á síðustu dögum.
 
„Strákurinn minn sagði mér frá því á föstudag að 2 bekkjarsystur hans voru áreittar í strætó af útlendingum og þeir eltu þær inn í Nettó. Þar læstu þær sig hágrátandi inn á klósettinu á meðan þeir börðu á dyrnar og kölluðu á þær. Lögreglan var víst kölluð á svæðið,“ segir í einni athugasemdinni.
 
Bæjaryfirvöld eru einnig hvött til að endurskoða mál hælisleitenda. Vitnað er til lögreglumanna sem segja marga til vandræða.
 
„Þið afsakið langlokuna,“ skrifar einn í ummælum. „Hef þetta staðfest eftir afar áreiðanlegum heimildum. Þessir menn ekki að áreita í fyrsta sinn eru alræmdir, frá Albaníu og sóttu hér um hæli. Það þarf ekki að tipla á tánum með það. Ég sem foreldri hringdi nokkur símtöl í kvöld og fékk þetta staðfest úr mörgum áttum - traustum heimildum. Hef einnig fengið skilaboð frá fólki sem börn þeirra hafa lent í þessum mönnum, starfsfólki t.d. úr verslun hér í bæ. Því miður þá tipla margir á tánum því þetta eru hælisleitendur!! Ekki rugla saman Sýrlenskum fjölskyldum sem flýja stríð og örbirgð. Þetta eru albanskir stakir karlmenn - glæpamenn. Þetta eru staðreyndir. Það koma eflaust meiri upplýsingar á næstu dögum en eftir þau símtöl og samtöl sem ég hef átt í kvöld þá er þetta engin lygi. Þessi mál eru eldfim en það á ekki að þagga þetta. Við eigum ekki að gefa afslætti og vísa fólki burt hið snarasta sem ekkert erindi hefur hérna“.
 
Sami aðili skrifar svo aftur: „Ég er búinn að fá ótrúleg símtöl í kvöld. Það tipla svo margir á tánum yfir þessu því þetta eru hælisleitendur. Það má ekkert segja. En staðreyndin er sú að það er búið að vera vesen með ákveðna menn, Albani sem hafa áreitt og nú í dag beitt ofbeldi (kynferðislegu líka) gegn börnum í bænum okkar. Þá er manni nóg boðið. Þetta hef ég eftir foreldrum barna sem lentu í þessu og vinum þeirra sem voru með. Lögreglan er fámenn og hafa lítil úrræði en eru að gera sitt besta. Þeir fóru og ætluðu að ná mönnum í yfirheyrslu í dag en gátu ekki því þegar þeir komu uppá Ásbrú mættu þeim 20-30 manns með aðsúg. Þetta eru hælisleitendur sem eru á vegum ríkisins, ég sætti mig ekki við að hafa þetta fólk þarna uppfrá þegar svona lagað kemur uppá. Ég veit líka að það á að vísa þeim einhverjum úr landi í nótt en ekki nákvæmlega hverjum“.
 
Þá kemur fram í  færslum að foreldrar ætla að mæta í strætisvagna í Reykjanesbæ á morgun, eftir skóla, til að hafa eftirlit og vernda börn sem nýta sér þjónustu vagnanna.
Public deli
Public deli