Árásarpiltarnir yfirheyrðir í dag
Lögreglan á Suðurnesjum er búin að hafa uppi á öllum þremur piltunum, sem gengu í skrokk á skólafélaga sínum á lóð Njarðvíkurskóla í gær, þannig að gera þurfti að sárum fórnarlambsins á heilsugæslustöðinni.
Piltarnir eru allir 15 ára og verða yfirheyrðir nánar í dag. Þeir gáfu þær skýringar í gærkvöldi að þeir hafi verið að hefna sín á fórnarlambinu fyrir að hafa hrekkt yngri bróður eins árásarpiltanna fyrr um daginn. Lögregla leitar að einum pilti enn, sem tók myndir af atburðinum og setti þær á Netið.
Frétt af www visir.is
Mynd: Ofbeldið var myndað og sett á netið.