Bygg
Bygg

Fréttir

Áramótabrennurnar á Suðurnesjum
Fimmtudagur 31. desember 2009 kl. 15:02

Áramótabrennurnar á Suðurnesjum

Brennur verða í öllum sveitarfélögum Suðurnesja nema Reykjanesbæ í kvöld, gamlárskvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í Sandgerði verður tendrað í brennunni kl. 20:00 sunnan við íþróttasvæðið, á sama stað og verið hefur. Björgunarsveitin Sigurvon verður með flugeldasýningu upp úr kl. 20:30.

Í Vogum verður kveikt í brennu kl. 20:00 aftan við Íþróttahúsið á sama stað og verið hefur og er hún á vegum Björgunarveitarinnar Skyggnis.

Í Garði verður brenna á gamla malarvellinum við Sandgerðisveg kl. 20:30 en hún verður í umsjón Björgunarsveitarinnar Ægis. Flugeldasýning verður í boði sveitarfélagsins Garðs kl. 21:00

Í Grindavík verður brenna út í Bót, á sama stað og venjulega. Tendrað verður í brennunni kl. 20:30.