Annríki hjá sjúkraflutningsmönnum
Annríki hefur verið hjá sjúkraflutningsmönnum Brunavarna Suðurnesja síðasta sólarhringinn. Þannig voru átta sjúkraflutningar í nótt og svipaður fjöldi var í gærdag. Flestir eru flutningarnir vegna veikinda fólks, en einnig vegna smápústra í umferðinni.Í þessari viku hafa verið um 30 sjúkraflutningar vegna veikinda og slysa.