Fimmtudagur 20. júní 2002 kl. 17:06
Annríki hjá sjúkraflutningsmönnum
Annríki hefur verið hjá sjúkraflutningsmönnum Brunavarna Suðurnesja í allan dag. Þegar þetta er skrifað núna rúmlega fimm eru tveir sjúkrabílar úti í verkefnum. Að sögn varðstjóra hjá B.S. hefur komið um tugur útkalla á sjúkrabílana í dag..Öll eru þau vegna veikinda, að sögn varðstjóra.