Annir hjá grindvískum björgunarsveitarmönnum
Á vefsíðu Grindavíkur var lögð fram áskorun til Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar um að reisa göngubrú yfir Rásina ofan við Stóru-Bót. Björgunarsveitin Þorbjörn sér ekki færi á því að verða við þessari áskorun að sinni. Ástæður þess eru margar og má helst nefna í því samhengi umfangsmikið verkefni björgunarsveitarinnar sem ásamt fjórhjólaævintýrum ætla að reisa sjö ný söguskilti á Hópsnesi.
Söguskiltin verða með svipuðu sniði og gömlu skiltin sem nú eru ónýt. Munu nýju skiltin verða minnisvarðar um þau fjölmörgu óhöpp sem hafa orðið í sögu sjósóknar hér við Grindavík.
Einnig er skipulagning Sjóarans Síkáta hafin en björgunarsveitin verður sem fyrr mikið á ferðinni um þá helgi eins og alltaf. Undirbúningur er þegar hafin hjá meðlimum björgunarsveitarinnar og er mikil tilhlökkun í fólki.
Töluvert hefur verið leitað til Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í tengslum við eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli eins og svo margra annara. Sérútbúin sexhjól og jeppar björgunarsveitarinnar fóru í tvo leiðangra austur á Fimmvörðuháls til aðstoðar við lögreglu og björgunarsveitir á svæðinu. Björgunarsveitin sjá m.a. um eftirlit í kringum gosstöðvarnar, göngumenn voru aðstoðaðir í tugavís ásamt mörgum jeppum og farartækjum. Þá flutti björgunarsveitin slasað og þreytt ferðafólk til byggða.
Eftir að eldgos hófst í Eyjafjallajökil hefur sveitin þegar farið í nokkra leiðangra austur. Fyrst til þess að aðstoða við lokun og eftirlit á Markarfljótsbrú ásamt því að sinna eftirliti við Gígjökul og þannig gefa upplýsingar um hugsanleg flóð.
Sumardaginn fyrsta fór hópur frá björgunarsveitinni til þess að aðstoða bændur undir Eyjafjöllum við hreinsunarstörf eftir öskufall. Var hópurinn að störfum í 13 klukkustundir ásamt því að aka austur og til baka.
Aðfaranótt föstudagsins fór svo stjórnunarteymi á vegum björgunarsveitarinnar til þess að leysa af í stjórnstöð Almannavarna á svæðinu. Þeirra verkefni er meðal annars að stjórna þeim viðbúnaði sem er í gangi hverju sinni og skipuleggja aðgerðir næstu daga í samráði við yfirvöld.
Að öðru leiti hefur Björgunarsveitin Þorbjörn farið í 16 útköll það sem af er þessu ári, bæði á sjó og landi. Að auki hafa menn sótt námskeið, haldið fundi og stundað æfingar ásamt því að viðhalda tækjum og búnaði.
Allt þetta er hægt vegna góðs stuðnings bæjarbúa við björgunarsveitina síðustu ár því flugeldasala og styrkveitingar skipta öllu máli í rekstri björgunarsveitar.
Myndir: Björgunarsveitin Þorbjörn við gosstöðvarnar.