Annasöm helgi hjá lögreglunni
Lögreglan í Keflavík hafði í nógu að snúast nú um helgina. Mikið var um ölvun og nokkur útköll voru vegna slagsmála og heimilisófriðar.Tveir menn misstu stjórn á skapi sínu utan við skemmtistaðinn Casino á föstudagskvöldið og bitnaði reiði þeirra meðal annars á tveimur bílum, sem stóðu á bifreiðastæði framan við skemmtistaðinn. Bílarnir eru töluvert skemmdir eftir barsmíðarnar.Slökkvilið og lögregla fóru í útkall í hús í Vogunum í hádeginu á laugardaginn, vegna brunaboða. Kom í ljós að húsráðandi hafði gleymt að skrúfa fyrir heita vatnið í eldhúsvaskinum og hafði mikil vatnsgufa myndast inní íbúðinni. Maðurinn var áfengisdauður og vaknaði ekki fyrr en lögreglumenn komu honum til meðvitundar. Nokkrar skemmdir urðu á íbúðinni.Nágrannar tilkynntu um mikil ólæti í íbúð í Njarðvíkunum sl. sunnudagskvöld. Lögreglumenn fóru á vettvang en þarna var um deilur sambýlisfólks að ræða. Málalyktir urðu þær að konan fór af heimilinu ásamt vinkonu sinni, þar sem ekki var hægt að leysa málið á staðnum.