Bygg
Bygg

Fréttir

Anna og Nanný finna núið í náttúrunni
Þriðjudagur 20. júní 2017 kl. 12:44

Anna og Nanný finna núið í náttúrunni

Á sérstökum stað í fallega bænum okkar fór hópur kvenna í jóga á kvennafrídaginn sjálfan. Anna Margrét og Nanný ætla að bjóða upp á útivist og jóga í sumar sem snýst um að finna núið í náttúrunni.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nanný er þaulreynd leiðsögukona og hefur farið óteljandi gönguferðir með hópa um Reykjanesið síðustu ár. Í vor lauk hún einnig jógakennararéttindum og tvinnar nú þessar ástríður saman. Anna Margrét útskrifaðist sem jógakennari fyrir 3 árum og stóð meðal annars fyrir „Pop up jóga“ síðastliðið sumar, sem mun halda áfram nú í sumar.