Bygg
Bygg

Fréttir

Andstæðingar jarðhræringa á Suðurnesjum vilja næturfrið
Þriðjudagur 2. mars 2021 kl. 13:23

Andstæðingar jarðhræringa á Suðurnesjum vilja næturfrið

Andstæðingar jarðhræringa á Suðurnesjum hafa eignast vettvang fyrir baráttumál sín eins og ró og næturfrið. Haukur Hilmarsson fer fyrir síðu á fésbókinni þar sem þessir andstæðingar geta sameinast.

„Er orðinn svo þreyttur á þessum jarðhræringum í skjóli nætur að ég stofnaði grúppu gegn þessu. Grúppunni er ætlað að vera þrýstiafl á opinbera aðila að sporna við óafturkræfu raski á nætursvefni, sjónvarpsglápi og öðru innantómu hjómi á samfélagsmiðlum sem fær ekki hljómgrunn í þessu jarðraski,“ segir Haukur í kynningu á hópnum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hér má sjá síðuna.