Andlát við gosstöðvarnar
Erlendur ferðamaður á sextugsaldri missti meðvitund í gærkvöldi við jaðar hraunsins við Litla-Hrút. Vettvangsaðilar hófu lífgunartilraunir á vettvangi en maðurinn var úrskurðaður látinn við komuna á sjúkrahús. Frá þessu greinir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Viðbragðsaðilar höfðu í nógu að snúast við að aðstoða ferðamenn í gær: Kona slæm í baki fékk aðstoð björgunarsveita við að komast niður á bílastæði. Tólf ára stúlka varð örmagna á gönguleið og var flutt af svæðinu af björgunarsveitarmönnum. Fjórir ferðamenn treystu sér ekki til að ganga til baka niður gönguleið og fengu aðstoð við að koma sér niður. Kona varð viðskila við ferðahóp en fannst skömmu síðar. Þá voru höfð afskipti af nokkrum mönnum á fjórhjólum sem fóru ekki að fyrirmælum lögreglu.
Í dag er opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum. Skyggni verður lélegt við gosstöðvarnar með kvöldinu og verður því lokað inn á svæðið kl. 17 í dag. Slökkvistarf hefur gengið vel og heldur áfram í dag.
Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka tekur um 5 til sjö klukkustundir. Aðrar gönguleiðir samkvæmt korti eru jafnframt opnar.
Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði/bannsvæði.
Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.
Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð. Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum. Þá er gangan löng og reynist sumum erfið.
Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.
Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.
Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.
Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/ https://www.visitreykjanes.is/en
Akstur utan vega er bannaður.
Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.