Fréttir

Andlát: Ragnar Örn Pétursson
Sunnudagur 1. maí 2016 kl. 19:07

Andlát: Ragnar Örn Pétursson

Ragnar Örn Pétursson fyrrverandi íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 29. apríl eftir skammvinna baráttu við krabbamein.

Ragnar Örn starfaði sem íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar í nær 20 ár. Hann var ötull þátttakandi í íþróttastarfi Reykjanesbæjar og var m.a í íþróttaráði Keflavíkur frá 1986-1998. Var formaður Íþróttabandalags Keflavíkur 1994-1998. Ragnar Örn var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Keflavík frá 1990-1994 og starfaði fram til dánardags fyrir Sjálstæðisflokkinn í Keflavík og var formaður Fulltrúaráðs flokksins. Ragnar Örn var formaður Starfsmannafélags Suðurnesja í 14 ár frá 1999-2013 og sat þau ár einnig í stjórn BSRB. Ragnar Örn var virkur meðlimur Kiwanis-hreyfingarinnar og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum, þar á meðal var hann umdæmisstjóri hreyfingarinnar á Íslandi og í Færeyjum 2011-12 og sat í Evrópustjórn þann tíma.

Ragnar Örn lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn og 10 barnabörn.

Útför verður frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 4. maí klukkan 13.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024