HSS
HSS

Fréttir

Ánægja með Suðurnesjaþátt á ÍNN
Laugardagur 7. mars 2009 kl. 23:33

Ánægja með Suðurnesjaþátt á ÍNN

- lumar þú á sjónvarpsvænu efni?

Við hjá Víkurfréttum höfum fengið ánægjuleg og góð viðbrögð við Suðurnesjasjónvarpsþætti okkar á ÍNN, sem við kusum að kalla Suðurnesjamagasín. Fyrsti þátturinn var sendur út sl. fimmtudagskvöld en hann er einnig í endursýningum á ÍNN nú um helgina. Þá er þátturinn sendur út í Kapalsjónvarpinu í Reykjanesbæ og hann má nálgast í Sjónvarpi Víkurfrétta hér á vf.is.

Þátturinn verður endursýndur í hádeginu á sunnudag, 8. mars, kl. 12:30 á ÍNN sem er á rásum 20 á Digital Íslands og á myndlykli Símans.

Næsti þáttur fer í loftið nk. fimmtudagskvöld kl. 21:30 og verður fjölbreyttur í efnisvali. Framhaldið á þáttagerðinni verður síðan metið í framhaldinu af næsta þætti, þ.e. hvort Suðurnesjamagasín verði vikulega á dagskrá eða lengra verði á milli þátta.

Við hvetjum Suðurnesjafólk til að koma með ábendingar um áhugavert og sjónvarpsvænt efni til okkar á Víkurfréttum. Ábendingum má koma til okkar með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 421 0002 virka daga kl. 09-17.

Bílakjarninn
Bílakjarninn