Ammoníaksleki í Innri Njarðvík
Tilkynnt var um ammoníaksleka í fiskverkunarhúsum gamla Brynjólfs í Innri Njarðvík klukkan rúmlega ellefu í morgun. Lögregla og slökkvilið Brunavarna Suðurnesja fór á vettvang ásamt eiturefnaköfurum en vindátt var hagstæð þannig að fólk í nærliggjandi húsum var ekki í hættu.Gísli Viðar Harðarson, aðalvarðstjóri Brunavarna Suðurnesja og stjórnandi á vettvangi, sagði að viðbótarmannskapur hafi strax verið settur í viðbragðsstöðu þegar útkallið barst. „Þeir voru sendir aftur til baka því starfið gekk vel. Útkallið barst kl. 11:20 og við vorum búnir að skrúfa fyrir lekann kl. 11:55“, sagði Gísli Viðar.Sem betur fer var vindátt hagstæð og ytri aðstæður eins og best varð á kosið þannig að starfsfólk Laugafisks, í næsta húsi, var aldrei í hættu. Að sögn Gísla bregst líkaminn við ammoníaki á þann hátt að fólk finnur fyri ertingu í hálsi og augum, en efnið er ekki hættulegt í sjálfu sér. „Ef ytri aðstæður hefðu verið aðrar, þá hefði getað skapast þarna mikil sprengihætta, þ.e. annað hlutfall súrefnis á móti ammoníaki“, sagði Gísli Viðar.Hvað gerðist?„Tveir vélstjórar voru þarna að vinna við frystikerfi í húsinu, og tóku tappa úr leiðslu og um leið fór ammoníak og olía að streyma út í andrúmsloftið. Tveir eiturefnakafarar fóru inní húsið og skrúfuðu fyrir neyðarloka, sem þar voru og settu tappann aftur í, sem vélstjórarnir höfðu fjarlægt. Þetta gekk allt saman vel því við fengum allar upplýsingar hjá vélstjórunum og gátum því reiknað út aðstæður“, sagði Gísli Viðar og bætti við að um mistök hefði verið að ræða hjá vélstjórunum sem ættu ekki eftir að endurtaka sig, en frystitækin í húsinu væru í fínu lagi.