Miðvikudagur 29. júní 2005 kl. 21:18
Ammoníak lak út í Njarðvík
Laust fyrir hádegi var tilkynnt til lögreglunnar í Keflavík að ammoníakslykt væri að finna í Ytri-Njarðvík. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að verið var að vinna við að skipta um vél í fiskvinnsluhúsi í bænum og hafði mjög lítið magn farið út í andrúmsloftið. Engin hætta á ferðum.