Ameríkuflugi aflýst vegna veðurs
Flugi Icelandair til Boston, flugnúmer FI631, og New York (FI615) síðdegis í dag hefur verið aflýst vegna veðurins sem nú gengur yfir austurströnd Bandaríkjanna.
Jafnframt hefur flugi frá þessum borgum til Íslands í kvöld verið aflýst (FI630 og FI614).
Icelandair segir, að búist sé við að samgöngur verði aftur komnar í gang síðdegis á morgun og að flug verði þá samkvæmt áætlun, en farþegar eru beðnir að fylgjast með brottfarartímum.