Laugardagur 19. apríl 2003 kl. 21:11
Am

Töluvert annríki var hjá Lögreglunni í Keflavík í nótt. Lögreglan stóð mann um tvítugt að verki þar sem hann var að brjótast inn í bíl í morgun. Maðurinn braut rúðu í bílnum og sat inn í honum þegar lögreglan kom að honum. Maðurinn brást hinn versti við afskiptum lögreglu og kom til átaka sem lauk með því að maðurinn var færður í fangaklefa þar sem hann svaf úr sér.Tveir menn voru einnig handteknir í gærkvöldi eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra. Annar reyndi að fleygja frá sér umslagi og í því voru 30 grömm af amfetamíni og 15 grömm af hassi. Mönnunum var sleppt eftir yfirheyrslu.