Ályktun um raflínur og atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum
Aðalfundur VG á Suðurnesjum sem fram fór þriðjudaginn 8. janúar síðastliðinn, harmar eftirgjöf bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga í baráttu sinni fyrir því að nýjar háspennulínur gegnum sveitarfélagið verði lagðar í jörð. ÞEtta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vinstri hreyfingunni.
Stjórnin bindur vonir við að væntanlegar niðurstöður jarðstrengjanefndar Alþingis muni leiða í ljós að ekki sé þörf á jafn groddalegum háspennulínum og Landsnet telur að þurfi. Aðalfundur VG á Suðurnesjum varar við ofurvæntingum um jákvæð áhrif Álvers í Helguvík á atvinnulíf hér, en fagnar þeirri fjölþættu atvinnustarfsemi sem eflist hratt m.a. með þróttmiklum stuðningi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.