Álver: Ráðherrar upplýsi hvaðan orkan á að koma
Nokkur náttúruverndarsamtök á Íslandi hafa sent frá sér áskorun til stjórnvalda þar sem þau eru hvött til að gera rækilega grein fyrir því hvaða háhitasvæði og vatnsföll verði nauðsynlegt að virkja til þess að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álver í Helguvík.
Áskorunin er svohljóðandi:
„Stjórnvöld hvött til að veita upplýsingar um orkuöflun
Skorað er á ríkisstjórnina, einkum forsætisráðherra, umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra, að taka saman yfirlit og gera rækilega grein fyrir því hvaða háhitasvæði og vatnsföll verður nauðsynlegt að virkja til þess að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álverksmiðju í Helguvík.
Orkuþörf þessa fyrirhugaða álvers er um 650 MW eða sem nemur nærri einni Kárahnjúkavirkjun. Orkuvinnsla í slíku umfangi getur ekki komið til án þess að henni fylgi ráðstöfun fjölmargra dýrmætra hverasvæða og vatnsfalla sem mörg hver ættu heldur að njóta verndar.
Með vísan í fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að hún muni „beita sér fyrir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi og lýðræðisumbótum” heitum við á ráðherrana að upplýsa þjóðina um þessi efni.
Græna Netið
Náttúruverndarsamtök Íslands
Náttúruverndarsamtök Suðurlands
Sól í Straumi
Sól á Suðurlandi
Sól á Suðurnesjum„
---
Ljósmynd/Ellert Grétarsson – Krýsuvík er eitt þeirra svæða sem fyrirhugað er að virkja til að afla orku fyrir álver Norðuráls í Helguvík.